Það er bara allt að verða vitlaust heima á klakanum - Dóri frændi hættur að stjórna - sem er kannski gott kallinn getur þá kannski farið að finna brosið sitt aftur... Tónleikahaldarar eru síðan loksins að fatta það að við erum ekki voðalega mörg á þessu skeri - salan gengur alltaf illa á tónleika og allir virðast þeir enda á NASA sem er í sjálfu sér fínt - skemmtilegur staður en samt ekki alveg að borga sig þegar er búið að plögga eitthvað í marga mánuði... En það þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af svona rugli í sumar þegar Emilíana og Bella Bastíansdóttir troða upp í bræðslunni - það verður crazzzy!
Ég er loksins að lesa bókina um Pétur poppara sem ég fékk í jólagjöf - þetta er skyldulesning! Maðurinn var náttúrulega algjör snillingur and then some!!!
Diskar vikunnar eru síðan nýi Pearl jam sem fær fullt hús og nýi peppers sem er of langur (38 lög) en ég held að hann sé snilld líka, er bara ekkert búnað ná að klára hann...6
Ég er annars hress fyrir þá sem það skiptir máli - sakna Marinós og Eyrúnar meira en ég fæ nokkurn tímann útskýrt á tölvuskjá en það verður þá bara meira gaman þegar maður loksins kemur heim :)

hættur að röfla - meira síðar....
Posted at 08:19 pm by Hljomur
Ég verð að spila á gítarinn minn á solon á miðvikudagskvöld upp úr 11 - sjáumst þar :)
Posted at 02:53 pm by Hljomur
Ein
af mínum best lifandi bernskuminningum er þegar ég fór ungur tll ömmu
og afa í Þorlákshöfn í heimsókn - þetta er kannski ekki til frásögu
færandi í sjálfu sér en það sem gerði þetta enn skemmtilegra fyrir
lítinn strák var sú staðreynd að þar var Stöð 2... fyrir þá sem ekki
vita kom Stöð 2 á Borgarfjörð árið 2000...
Það sem stóð upp úr barnaefninu á þessum tíma var vingjarnlegur kall
með hatt sem spilaði á kassagítar og spjallaði við mann milli þess sem
hann sýndi teiknimyndir - að sjálfsðgðu tók maður strax ástfóstri
við hann og átti upp frá því þrjá Afa...
Síðustu 19 ár hefur Afi
á Stöð 2 verið fastur punktur í tilveru barna á Íslandi og ég leyfi mér
að halda því fram að hann hafi gert meira fyrir uppeldið á heilli
kynslóð en flestir Afar sem eru þarna úti - þess vegna varð mér orða
vant þegar ég frétti að síðasti þátturinn af Með Afa var tekinn upp
síðasta miðvikudag - That´s right - Stöð 2 er hætt að framleiða Afa. Ég
fékk reyndar ekki nákvæma útskýringu á því af hverju það væri - ég veit
samt að Örn Árna vill halda áfram en þeir sem ráða eru ekki vissir um
vinsældirnar vegna þess að það má ekki gera áhorfskannanir á barnaefni
- HALLÓ - er einhver sem efast um vinsældir Afa!!!
Ég er öskureiður út í þetta rugl og lýsi hér með yfir andstöðu minni á þessu klúðri! Afi lengi lifi - húrra - húrra - húrra!
Posted at 09:45 am by Hljomur