Entry: afi... Sunday, May 14, 2006




Ein af mínum best lifandi bernskuminningum er þegar ég fór ungur tll ömmu og afa í Þorlákshöfn í heimsókn - þetta er kannski ekki til frásögu færandi í sjálfu sér en það sem gerði þetta enn skemmtilegra fyrir lítinn strák var sú staðreynd að þar var Stöð 2... fyrir þá sem ekki vita kom Stöð 2 á Borgarfjörð árið 2000...
Það sem stóð upp úr barnaefninu á þessum tíma var vingjarnlegur kall með hatt sem spilaði á kassagítar og spjallaði við mann milli þess sem hann sýndi teiknimyndir -  að sjálfsðgðu tók maður strax ástfóstri við hann og átti upp frá því þrjá Afa...

Síðustu 19 ár hefur Afi á Stöð 2 verið fastur punktur í tilveru barna á Íslandi og ég leyfi mér að halda því fram að hann hafi gert meira fyrir uppeldið á heilli kynslóð en flestir Afar sem eru þarna úti - þess vegna varð mér orða vant þegar ég frétti að síðasti þátturinn af Með Afa var tekinn upp síðasta miðvikudag - That´s right - Stöð 2 er hætt að framleiða Afa. Ég fékk reyndar ekki nákvæma útskýringu á því af hverju það væri - ég veit samt að Örn Árna vill halda áfram en þeir sem ráða eru ekki vissir um vinsældirnar vegna þess að það má ekki gera áhorfskannanir á barnaefni - HALLÓ - er einhver sem efast um vinsældir Afa!!!

Ég er öskureiður út í þetta rugl og lýsi hér með yfir andstöðu minni á þessu klúðri!
Afi lengi lifi - húrra - húrra - húrra!

   11 comments

Kolbeinn Kristinsson
August 3, 2006   09:35 AM PDT
 
Sveppi tekur víst við...
Halldór
August 2, 2006   05:43 PM PDT
 
Magni, þú ert heví að meika það í Rockstar!

En annars þá sá heyrði ég örn tala um að hann nennti þessu "afarugli á stöð 2" ekki lengur...
þórdís ýr rúnarsdóttir
July 26, 2006   05:02 PM PDT
 
hæhæ..þaddna þegar að þú vasst að tala um þorlákshöfn..ég er alin þar upp og hef átt heim þar alla mína æfi..mamma mín og bróðir þinn man ekki hvað hann heitir voru saman í bekk magni minn;) þú kemur alltaf á hafnardaga og syngur fyrir okkur þessi frábæru lög sem þú ert að syngja og vonandi fáum við þig alltaf a hafnardaga..:D sjáumst hress á hafnardögum í þolló:D:D haha..

kær rockstar kveðja þórdís ýr fyrrum og nýr þorlákshafnarbúi:D:D
Garðar
May 20, 2006   11:43 AM PDT
 
ég held að þetta sé nú hann ákvörðun þetta verður líklega þreytandi til lengdar....en samt sem áður besta barnaefni fyrr og síðar
eyrún
May 20, 2006   04:26 AM PDT
 
jáá, nú ertu að ljúga - kom ´97-´98.
Þröstur
May 17, 2006   03:18 PM PDT
 
´96
Kristín
May 15, 2006   07:54 AM PDT
 
'Eg get ekki verið meia sammálsa, mér finnst að börn framtíðarinniar eiga að hafa rétt á sama barnefni og við.
Gudny
May 14, 2006   02:56 PM PDT
 
Trúi því ekki að Afi (með stóru A-i) sé að hætta!!!! Uppáhald barnanna minna, getum við ekki gert undirskriftalista eða eitthvað til að mótmæla? Er eitthvað betra að börnin séu að horfa á endalausar teiknimyndir... sem eru ekki einu sinni talsettar??
Erla
May 14, 2006   12:41 PM PDT
 
gæti ekki verið meira sammála!!!!
Erla
May 14, 2006   12:41 PM PDT
 
gæti ekki verið meira sammála!!!!
Óli Bj.
May 14, 2006   12:12 PM PDT
 
Stöð 2 kom á Borgarfjörð 98!
Bið að heilsa...

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments