Entry: allt að gerast Monday, June 05, 2006



Það er bara allt að verða vitlaust heima á klakanum - Dóri frændi hættur að stjórna - sem er kannski gott kallinn getur þá kannski farið að finna brosið sitt aftur...

Tónleikahaldarar eru síðan loksins að fatta það að við erum ekki voðalega mörg á þessu skeri - salan gengur alltaf illa á tónleika og allir virðast þeir enda á NASA sem er í sjálfu sér fínt - skemmtilegur staður en samt ekki alveg að borga sig þegar er búið að plögga eitthvað í marga mánuði... En það þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af svona rugli í sumar þegar Emilíana og Bella Bastíansdóttir troða upp í bræðslunni - það verður crazzzy!

Ég er loksins að lesa bókina um Pétur poppara sem ég fékk í jólagjöf - þetta er skyldulesning! Maðurinn var náttúrulega algjör snillingur and then some!!!

Diskar vikunnar eru síðan nýi Pearl jam sem fær fullt hús og nýi peppers sem er of langur (38 lög) en ég held að hann sé snilld líka, er bara ekkert búnað ná að klára hann...6

Ég er annars hress fyrir þá sem það skiptir máli - sakna Marinós og Eyrúnar meira en ég fæ nokkurn tímann útskýrt á tölvuskjá en það verður þá bara meira gaman þegar maður loksins kemur heim :)


hættur að röfla - meira síðar....

   31 comments

Atli
January 1, 2007   05:55 PM PST
 
halloo ég heiti atli grétar ingolfsson og ég þekki ömmu þína og afa í þorlákshöfn :)
Stína fína appelsína
October 5, 2006   03:42 PM PDT
 
Sæll Magni.
Þú þekkir mig ekki en ég er auðvitað ein af öllum þeim sem elska Magna sinn núna ;)
Ég vil byrja á að óska þér innilega til hamingju með þennan frábæra árangur og þakka kærlega fyrir GEÐVEIKA skemmtun síðasta laugardagskvöld. Ég lifi enn á því!
Bestu tónleikar sem ég hef farið á síðan Metallica kom hingað, án efa!!!
Þú stendur þig frábærlega!!
Nú vill svo til að ég er rosalega hrifin af Josh Logan sem var með þér í Rockstar: Supernova og hafði samband við hann í gegnum Myspace. Ég sendi honum meil til að tékka á því hvort hann hefði í hug að kíkja hingað og reyna að spila með þér og hann sagðist vera rosalega til í það ef þið í Á móti sól hefðuð áhuga. Hann sagði mér að senda þér meil í gamni og kanna áhugann. Nú vona ég innilega að þú takir vel í þetta og haldir aðra eins geggjaða tónleika fyrir okkur Íslendingana þína ;)

Takk kærlega fyrir alla skemmtunina og velkominn heim.
Bestu kveðjur,
Rockstar áhorfandinn Stína fína
Hjördís
September 19, 2006   02:20 PM PDT
 
Jæja, nú ertu búinn að hvíla þig nóg...ekki kominn tími á færslu?
Andi
September 19, 2006   11:36 AM PDT
 
Magni,

I am so excited to hear that you will be touring with the house band from Rockstar:Supernova. I think you with the house band will be the best part of that entire concert!

Hope you join them permanently and put out many CD's. I think that could be the best thing to happen to the music industry in a long time.

Love and peace,

Andi
Tóti Freysson
September 19, 2006   02:20 AM PDT
 
Heyr, heyr ... fætur á jörðinni ... stóðst þig snilldarlega ... nú getur maður hætt að vaka á þriðjudags og miðvikudagskvöldum ... það var þess virði!!
babe_magni
September 18, 2006   09:22 AM PDT
 
Finally, Magni's home. HAIL TO THE KING OF ICELAND!

The world is waiting for your new all-English album and world tour. ;)


http://magnifans.jconserv.net/index.php
Boston Inga
September 15, 2006   03:41 AM PDT
 
Sæll og blessaður. Þá er þessari törn lokið hjá þér í bili og þú stóðst þig eins og hetja. Við hér nokkrir íslendingar í Boston höfum hreinlega setið sem fastast í sófanum og horft á þig og kosið eins og vitleysingar á eftir, en allt kom fyrir ekki, þú ert samt hetjan okkar. Mörgum sem ég hef sagt frá þessu finnst það ansi merkilegt að strákur sem kemur alla leið frá íslandi og sumir vita ekki einu sinni hvað það er (s.b. Tomm Lee) hafi komist í þessa keppni og það er eiginlega satt og alger heppni eins og þú sagðir sjálfur frá. Ég vona að þú getir hvílt þig vel þegar að þú kemur á klakan og leikið við strákin þinn. Eitt að lokum, það sem mér finnst svo skemmtilegt við karekterinn þinn er að þú ert alltaf að koma manni á óvart, eins og þú sagðist ætla að vera heimavinnandi húsmóðir og eins hvernig þú svaraðir bandinu bara á þína vegu, varst ekkert smeðjulegur eins sumir þarna, flott hjá þér og ég óska þér og þinni fjölskyldu velfarnaðar á komandi árum. Haltu bara áfram að vera með fæturnar á jörðinni:)
Bestu kveðjur frá Boston
Inga.
p.s.ég heyrði viðtal við Dilana í kastljósinu og hún talaði um hálsmen sem þú hafir gefið henni þar sem hún var stödd í Boston,,,ekki segja mér að þið hafið verið í Boston og maður ekki vitað að því
the fan #1
September 13, 2006   08:56 PM PDT
 
listen to Magni singing Stan http://www.amotisol.is/template1.asp?pageid=206

ef þetta er ekki það besta sem þú hefur gert þá veit ég ekki hefir átt að sýna tlee og gilbz og jayman þetta...
Bragi Þorsteinss
September 5, 2006   02:36 PM PDT
 
djö vissi eg þetta alltaf . man þegasr við vorum að spila killing in the name of a böllum . væri gaman að syna tommy og felögum það a videoi.þa mundiru ekkert vera að keppa neitt meir.það var sturlað algerlega. fæ gæsahuð i hvert sinn sem eg heyri dolphins cry kassagítarsútgáfuna algerlega klikkað flott hja þer drengur.

kveðja
Gamli shape trommarinn :-)
Hulda
August 2, 2006   09:18 AM PDT
 
Mér finnst æðislegt hvað það hefur gengið vel, hef passað mig á því að horfa á hvern einasta þátt og svo hef ég kosið eftir tónleikana. Vonandi gengur allt vel áfram! Til hamingju með að fá þau til þín líka! Sendi góðar hugsanir!!
þórdís ýr
July 26, 2006   05:28 PM PDT
 
þú ert bara gjeðveikur náungi og ég er ógeðslega þakklát með að vera íslendingur núna;D;D;D;D haltu áfram að gera góða hluti og sjáumst á hafnardögum´i ´þolló:;D;d sjáumst í sveitinni magni minnD:D:D
Name
July 26, 2006   09:14 AM PDT
 
just dont understand why you have jakie chan's pic there?:)
Name
July 23, 2006   03:53 PM PDT
 
he cant continue with his blog because it is not a louwd in Rock Star:( he dosent have a phone ore anethyng...
no name :)
July 18, 2006   06:20 AM PDT
 
Magni can you pls continue with your blog :) so we can follow your feelings and expectation during Rock Star: Supernova :)

It would be soooooooo nice :)
Unnur
July 8, 2006   04:47 PM PDT
 
Til hamingju með þetta og bara gangi þér vel ;) nú er ég sko stolt af því að vera íslendingur eins og þú :D
Unnur
July 8, 2006   04:47 PM PDT
 
Til hamingju með þetta og bara gangi þér vel ;) nú er ég sko stolt af því að vera íslendingur eins og þú :D
Guðný frænka á Dalv.
July 5, 2006   06:06 PM PDT
 
FLOTTASTUR!!
Hjördís Alberts
June 28, 2006   05:59 AM PDT
 
Innilega til hamingju Magni MINN (nú ertu eign allra ekki satt, íslendinga þ.e.a.s.)

En bara svo þú vitir það og búir þig undir það þá dreymdi mig þig aftur í fyrrinótt sem þýðir náttúrulega bara eitt...þú ert nýji meðlimur SUPERNOVA :) (ekki erótískir draumar Eyrún;)

Þú átt eftir að taka þetta í gegn og verður okkur til sóma og okkar er heiðurinn að hafa einhverntíma þekkt þig.

Gangi þér vel, þú getur gengið að mínum atkvæðum vísum.

Kveðja úr Grindavík, Hjördís
Stína
June 23, 2006   02:11 PM PDT
 
Til hamingju með árangurinn Magni minn. Gangi þér vel áfram, við styðjum auðvita okkar mann!
Lára
June 22, 2006   01:21 PM PDT
 
hæ :) til hamingju með þetta ég ætla auðvitað að kjósa á hverju kvöldi :) þú ert alveg geðveikt góður söngvari :D þú rúllar essu upp;) bæbæ
Milla
June 22, 2006   10:50 AM PDT
 
Áfram Magni....I'm sitting here cheering you and smiling up north. Now way for me to see you on TV up here in Kópasker :(....but I think "mamma" is recording it. See you at Borgstokk....Give Marino a big kiss from me.
íris Dögg
June 22, 2006   08:28 AM PDT
 
innilega til hamingju.. þvílíkur árangur:)
Drífa M
June 22, 2006   05:22 AM PDT
 
Til hamingju Magni, þetta er frábært hjá þér!! Það verður gaman að fylgjast með á skjánum :)
Kv. Drífa
Kristín
June 22, 2006   03:17 AM PDT
 
Innilega til hamingju með þe´nnan frábæra árangur Magni og gangi þér vel með framhaldið.
Sigrún og co
June 22, 2006   01:24 AM PDT
 
Til hamingju með þetta allt Magni minn.... Þetta er alveg ótrúlegt, við eigum eftir að hugsa mikið til þín meðan þú ert úti í hinum stóra heimi. Það verða allavega partý á fimmtudagskvölum í sumar. Við skulum passa Eyrúnu og Marinó meðan þau verða hérna fyrir austan. Það er eiginlega ekki talað um neitt annað en þig hérna...... Allsstaðar þar sem maður kemur er verið að tala Magna frá Brekkubæ :) Hafðu það gott og passaðu þig á fræga fólkinu.
Kveðja
Sigrún, Orri og Emilía Anna
Þóra og Þorkell
June 22, 2006   01:21 AM PDT
 
Innilega til hamingju með frábæran árangur!!
Gangi þér sem allra best!!
einar hró
June 15, 2006   05:13 AM PDT
 
sé plakatið fyrir mér mér: Supernova...featuring members of Metallica, Mötley Crue, Guns n Roses and á móti sól, znilld!
Hildur María
June 11, 2006   02:03 PM PDT
 
diskurinn þeir eru nú að spila í berlín í sept og kostar ekkert á þá ummm...
Jódís
June 9, 2006   10:36 AM PDT
 
Takk fyrir strákinn, leiðinlegt að þú gast ekki verið með okkur á þessum góða degi. Við hugsum til þín kallinn minn;)
magni
June 6, 2006   07:33 AM PDT
 
ég var numinn brott af geimverum - það er nokkurnveginn rétt allavega
Uxinn
June 6, 2006   03:16 AM PDT
 
Bíddu við hvar ertu eiginlega staddur?

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments